Móthormónameðferð

Móthormónameðferð

Ummæli læknis:

"Í hvert sinn sem þú skiptir snögglega um lyf fer líkaminn í gegnum breytingar sem geta haft áhrif á það hvernig þér líður, þar á meðal á orkubúskapinn. Síðan fer það eftir því hvers konar lyf þú byrjar eða hættir að taka hvort áhrifin eru lítil eða mikil."

—Marisa Weiss, M.D.

Þegar byrjað er að taka móthormónalyf eða hætt að taka hormóna vegna tíðahvarfaeinkenna getur það haft þau áhrif að þér finnist þú hafa minni orku en áður. Hvers kyns ójafnvægi í hormónabúskap (og hvers kyns ójafnvægi í tilverunni ef út í það er farið) getur gert það að verkum að þér finnst þú vera þreytt. Hjá sumum konum er estrógen orkugjafi. Sé tekið fyrir estrógenframleiðslu eða komið í veg fyrir áhrif þess kann þér að finnast þú hafa minni drifkraft. Meðal and-estrógenlyfja eru tamoxifen (nolvadex), arimidex (anastrozole), femara (letrozole) og aromasin (exemestane).

 

Næsta síða: Læknisráð við stöðugri þreytu

 

Síðast uppfært í júlí 2007

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Text Size Controls