Geislameðferð
Geislameðferð
Ummæli læknis:
"Álagið sem fylgir margra vikna geislameðferð í kjölfar hræðslunnar sem fylgdi greiningunni, áraunin sem felst í skurðaðgerð, krabbameinslyfjameðferð og móthormónameðferð — allt getur þetta átt þátt í að svipta þig orkunni. Það kann að taka langan tíma að jafna sig á samanlögðum áhrifum þessa alls. Mín reynsla er einnig sú að truflunin á daglegu lífi sem fylgir því að taka tíma í þessar meðferðir getur virkilega sett lífið úr skorðum. Hugsanlega situr hreyfing og heilsurækt á hakanum, þú gætir ekki að mataræðinu á sama hátt og áður og gerir ekki lengur hluti sem þú hefur gaman að, einmitt það sem kann að hafa gefið þér þá orku sem þú þurftir á meðan tilveran var í föstum skorðum."
—Marisa Weiss, M.D.
Geislameðferð fylgir að jafnaði þreyta sem ágerist eftir því sem líður á meðferðina og hún getur varað í nokkrar vikur eða mánuði. Þreyta af völdum skurðaðgerðar og meðferðar með krabbameinslyfjum getur einnig hellst yfir þig á meðan þú ert í geislameðferðinni. Þurfi að geisla töluverðan hluta beins kann það að fækka rauðum blóðkornum og ónæmisfrumum, einkum sértu í meðferð með krabbameinslyfjum á sama tíma. Slakur blóðhagur og fáar ónæmisfrumur geta framkallað þreytu og slen. Hafir þú verið geisluð neðarlega á hálsinn fyrir framan skjaldkirtilinn er mögulegt (þótt sjaldgæft sé) að dragi úr starfsemi kirtilsins. Þetta ástand sem kallast skjaldvakabrestur hægir á efnaskiptum. Þá brennir fólk ekki fæðu nógu hratt til að fá þá orku sem það þarfnast til athafna og það kann að leiða til einkenna þunglyndis.
Meira um þreytu og geislameðferð.
Næsta síða: Móthormónameðferð
Síðast uppfært í júlí 2007
