Hverjir fá brjóstakrabbamein?
Hverjir fá brjóstakrabbamein?
Ummæli sjúklings:
„Ég var 41 árs þegar ég greindist," segir Bobbí. „Ég var grönn, fór í ræktina reglulega og borðaði hollan mat. Ég fór 'rétt' að öllu. Fólk sagði ÞAÐ GETUR EKKI VERIÐ! Hvernig getur þú verið með brjóstakrabbamein?"
Brjóstakrabbamein er sú tegund krabbameins sem flestar konur fá. *Samkvæmt krabbameinsskrá Krabbameinsfélags Íslands greindust á árunum 2002-2006 að meðaltali 176 konur með brjóstakrabbamein á ári. Það eru þrjár konur í viku hverri og rúmlega það. Flest bendir til að þessi ískyggilega tala muni fremur vaxa en hitt.
Hjá öllum konum eru EINHVERJAR líkur á að fá brjóstakrabbamein – líkurnar haldast einfaldlega í hönd við “hættuna” sem fylgir því að lifa og vera til. Engu að síður eru margir áhættuþættir sem geta gert líkur afar mismunandi frá einni konu til annarrar. Þegar þú skilur hverjir eru sérstakir áhættuþættir þínir, áttu auðveldara með að stjórna þeim og þarft ekki að óttast það sem þú þekkir ekki.
Viljirðu kynna þér hvernig altækar og hlutfallslegar líkur eru fundnar, smelltu þá hér.
Fræðslu um erfðaþætti, erfðarannsóknir, líkur á arfgengu brjóstakrabbameini og fleira, finnurðu hér.
Þær sem bera ábyrgð á þeim fróðleik sem er að finna í Hvaða konur fá brjóstakrabbamein? eru:
-
Carol Cherry, R.N., O.C.N., krabbameinshjúkrunarfræðingur við Fox Chase Cancer Center, Pennsylvania.
-
Marisa C. Weiss, M.D., krabbameinslæknir og sérfræðingur í geislalækningum við Thomas Jefferson University Health System, Philadelphia, Pennsylvania.
*Lesið hefur Sigurður Böðvarsson, læknir með krabbameins- og lyflækningar að sérgrein.
*Málsgrein merkt stjörnu er innskot þýðanda og ábyrgðarmanns.
Næsta síða: Einstaklingsbundnir áhættuþættir
Síðast uppfært í febrúar 2010
