Spjallið
Spjallið
Hugmyndin um að setja upp lokaða spjallrás verður ekki að veruleika á næstunni þar sem afla þarf fjár til að forrita hana og setja hana upp. Mig langar til að gera tilraun með aðra aðferð til að miðla reynslu og ná sambandi við fólk. Sú aðferð er ekki jafn gagnvirk en vonandi betri en ekkert. Langi þig til að deila reynslu þinni með öðrum eða liggi þér eitthvað á hjarta, getur þú sent tölvupóst á brjostakrabbamein@brjostakrabbamein.is og mun ég þá sjá um að bréf þitt fari inn þar sem hægt er að lesa það. Berist svar eða viðbrögð eftir sömu leið, verður það einnig birt. Mikill stuðningur getur falist í því að deila reynslu sinni með öðrum í sömu sporum eða þeim sem eiga að baki sömu reynslu. Til að lesa það sem hefur birst skaltu smella hér.
SPJALLRÁSIR Á ENSKU OG UMRÆÐURSÍÐUR
Með því að smella hér kemstu að Community Knowledge inni á breastcancer.org. Þar eru umræðusíður - Discussion forums - þar sem hægt er að finna ákveðin umræðuefni og skeyti frá notendum vefjarins og mikið af dýrmætum athugasemdum og upplýsingum.
Á sama stað er einnig aðgangur að spjallrásum - Chat Rooms - þar sem hægt er að skrá sig inn og skrifast beint á við aðra sem hafa greinst með brjóstakrabbamein. Þarna „hittast" konur víðs vegar í heiminum og geta rætt sín mál eða komið spurningum á framfæri.
Síðast uppfært í september 2009
