Sögusagnir um skurðaðgerðir vegna brjóstakrabbameins
Sögusagnir um skurðaðgerðir vegna brjóstakrabbameins
Alls kyns sögusagnir hafa gengið frá einni kynslóð til annarrar um aðgerðir vegna brjóstakrabbameins. Nógu erfitt er að fást við staðreyndir sjúkdómsins án þess að þurfa að kvíða einhverju sem á sér enga stoð. Miklu skiptir að láta ekki útbreiddan misskilning koma í veg fyrir að leitað sé bestu fáanlegrar meðferðar. Á eftir fara nokkrar af algengustu sögusögnum um skurðaðgerðir vegna brjóstakrabbameins.
-
Skurðaðgerð hleypir lofti að krabbameininu og kemur því til að dreifa sér
Nei
Þér líður ágætlega og þá uppgötvast eitthvað tortryggilegt í brjóstinu. Þú ert skorin eða sýni tekið og þú færð greininguna: krabbamein. Þegar sýni sem síðar eru tekin sýna krabbamein annars staðar í líkamanum er ekki óeðlilegt að halda að með aðgerðinni hafi leiðin verið opnuð fyrir krabbamein að berast um líkamann. („Ég fann ekki fyrir neinu fyrr en eftir aðgerðina."). Meinvörp brjóstakrabbameins (þ.e. krabbamein sem hefur dreift sér úr brjóstinu til annarra hluta líkamans) getur verið fyrir hendi lengi án þess að finnist fyrir því. Aðgerðin olli því ekki að krabbameinið finnst víðar; það var komið löngu fyrir aðgerðina.
-
Brjóstnám er öruggara en fleygskurður með geislameðferð
Það þarf ekki að vera
Fyrir konur með minna en fjögurra sentímetra stórt krabbameinsæxli á einum stað í brjóstinu sem fjarlægt var með hreinum skurðbrúnum er fleygskurður ásamt geislameðferð að öllum líkindum jafn áhrifarík aðgerð og brjóstnám.
-
Finnist mörg dæmi um brjóstakrabbamein í fjölskyldunni er fleygskurður ásamt geislameðferð ekki æskileg aðgerð
NeiÞótt mörg dæmi finnist um brjóstakrabbamein í fjölskyldu þinni þýðir það ekki að krabbameinið sem þú ert með sé sjálfkrafa hættulegra en annarra. Það þýðir ekki heldur að aðgerð sem gerir þér kleift að halda brjóstinu geti ekki hentað þér. Þú og læknir þinn munuð fara saman yfir ákveðna þætti þegar ákveðið verður hvers konar skurðaðgerð er heppilegust í þínu tilfelli. Þeir eru:
-
Séu eitlarnir teknir, verður handleggurinn bólginn það sem eftir er ævinnar
Nei
Þegar eitlar eru fjarlægðir með skurðaðgerð getur það haft í för með sér óþægilegar aukaverkanir svo sem viðvarandi óþægindi, doða og bólgur sem einu nafni kallast sogæðabólga . Yfirleitt gerist þetta aðeins í 5-10% tilfella. Hætta á sogæðabólgu getur farið upp í 25% ef allir eitlar í holhönd eru fjarlægðir (eitlar I., II. og III. hæðar eru teknir) ÁSAMT því að geisla eitlasvæðið eftir skurðaðgerð AÐ VIÐBÆTTRI meðferð með krabbameinslyfjum. Með því að hlífa handleggnum og hugsa vel um hann, fara í sjúkraþjálfun eða endurhæfingu er unnt að halda sogæðabólgu í skefjum og draga úr áhrifum hennar.
Næsta síða: Nýlegar framfarir
Síðast uppfært í júlí 2008
