Stuðningur og endurhæfing á LSH

Stuðningur og endurhæfing á LSH

Á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi (LSH) er margs konar þjónusta í boði sem getur stuðlað að bættri líðan sjúklinga sem greinast með brjóstakrabbamein (og aðra alvarlega sjúkdóma) og aðstandendur þeirra.

brjostakrabbi

BRJÓSTAHJÚKRUNARFRÆÐINGUR

Hjúkrunarfræðingurinn veitir stuðning, fræðslu og upplýsingar við greiningu sjúkdómsins, við fyrstu skref í meðferð og gegnum allt ferlið, sé þess þörf. Til þess hefur hann hlotið sérstaka þjálfun. Hægt er að snúa sér til brjóstahjúkrunafræðings með spurningar um sjúkdóm og meðferð, aðstoð við að fá aðra stoðþjónustu o.s.frv. Stoðþjónustan getur t.d. falist í að fá að tala við félagsráðgjafa eða sálfræðing, fara í slökun eða fá upplýsingar um gervibrjóst og hjálparbúnað.

Brjóstahjúkrunarfræðingur svarar í síma 825 3653 alla virka daga milli klukkan hálfeitt og hálfþrjú (12:30-14:30).

brjostakrabbi

KYNLÍFSRÁÐGJÖF

Boðið er upp á kynlífsráðgjöf á LSH Á heimasíðunni má finna nánari upplýsingar og tengil inn á fræðslu á heimasíðu Krabbameinsfélags Íslands. Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkrunafræðingur og klínískur kynfræðingur hefur verið ráðin sem meðferðaraðili í 20% starfi. Hafa má samband með því að senda tölvupóst til Jónu Ingibjargar (jonaijon@landspitali.is) eða með því að hringja í síma 543 6800, ritara 10-K, sem kemur skilaboðum til hennar og hún hefur samband.

(Lesa má um Kynlíf og nánd á brjostakrabbamein.is)

brjostakrabbi

SJÚKRAÞJÁLFUN

Á Landspítala Fossvogi, göngudeild B-1, er endurhæfing eftir greiningu krabbameins. Þar er boðið upp á sérhæfða sjúkraþjálfun og ráðgjöf, m.a. sogæðameðferð, styrkjandi þjálfun í tækjasal og slökun.

Til að nýta sér þjónustu sjúkraþjálfara þarf beiðni frá lækni. Síminn á deildinni er 543 9134 og þar er svarað frá átta til fjögur (08.00-16.00).

Í sjúkraþjálfun á Hringbraut er boðið upp á heilsurækt í tækjasal undir eftirliti sjúkraþjálfara á þriðjudögum og föstudögum kl. 11-12 hjá Ástu á Endurhæfingardeild (14 D) á 4. hæð í tengibyggingu. Nánari upplýsingar veitir móttökuritari í síma 543 9300.

 

Í sundlauginni á Grensási er boðið upp á hópþjálfun í laug á miðvikudögum og föstudögum kl. 14.30-15.00. Upplýsingar veitir Mónika Karlsdóttir, móttökustjóri í síma 543 9319. HÓPÞJÁLFUN Í VATNI er fyrir einstaklinga sem hafa greinst með krabbamein. Þjálfunin fer fram í sundlaug endurhæfingardeildarinnar á Grensási og er bæði ætluð þeim sem eru í meðferð og þeim sem hafa lokið henni. Liðkandi æfingar, léttar þolæfingar, vöðvateygjur og slökun í 30 mínútur í umsjón sjúkraþjálfara/íþróttakennara. Þjálfunin fer fram á miðvikudögum og föstudögum kl. 14.30-15.00 - í samráði við lækni. Upplýsingar veitir móttökuritari, Mónika Karlsdóttir, í síma 543 9319. Einnig má hafa samband við Sigrúnu Knútsdóttur, sjúkraþjálfara, í síma 543 9104.

Hentar ekki þeim sem eru í geislameðferð. Aðgangur að lauginni kostar kr. 375 fyrir elli- og örorkulífeyrisþega en kr. 525 fyrir aðra.

Fleira.... utan spítalans

 

 

brjostakrabbi

SÁLFRÆÐIÞJÓNUSTA

Sálfræðingar starfa á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi, og er hægt að leita eftir ráðgjöf og meðferð varðandi ýmis mál sem koma upp og einstaklingur hefur þörf fyrir að ræða. Margir nýta sér viðtal við sálfræðing fljótlega eftir greiningu krabbameins, aðrir þegar líður á meðferðina og enn aðrir fljótlega eftir að meðferð lýkur. Boðið er upp á einstaklingsviðtöl og -meðferð og getur hluti hennar farið fram með maka og/eða öðrum aðstandendum.

Dæmi um atriði sem sálfræðingarnir sinna:

  • Mat á líðan og tilfinningalegri stöðu.

  • Vinna með áföll sem kunna að koma upp í veikindunum.

  • Aðstoð við ýmsar afleiðingar veikindanna.

  • Vinna með viðhorf sem auðvelda aðlögun að breyttum aðstæðum.

  • Kennsla í slökun og streitustjórnun.

  • Meðferð við kvíða og depurð.

  • Aðstoð við að skoða og breyta hegðunarmynstri.

  • Aðstoð í samskiptaerfiðleikum.

  • Stuðningur við aðstandendur.

Viðtöl við sálfræðing má fá fyrir milligöngu læknis, hjúkrunarfræðings og/eða félagsráðgjafa LSH.

brjostakrabbi

FÉLAGSRÁÐGJÖF

Helsta verkefni félagsráðgjafa er að aðstoða einstklinga við að takast á við áfall og breytingar á aðstæðum í framhaldi af greiningu alvarlegs sjúkdóms. Hann sér einnig um að fræða um félagsleg réttindi er varða veikindin og tengja einstaklinginn þeim hjálparkerfum sem við eiga hverju sinni.

brjostakrabbi

SLÖKUNARMEÐFERÐ

Í boði er slökunarmeðferð undir leiðsögn hjúkrunarfræðings. Um er að ræða einkatíma fyrir sjúklinga og/eða ættingja þeirra, kennd undirstöðuatriði í slökun og unnið að markmiðum eins og að draga úr ógleði, verkjum, kvíða eða búa fólk undir lyfjameðferð, allt eftir því sem hver og einn þarfnast.

Slökunarmeðferð er samheiti fyrir margs konar meðferðir þar sem huganum er beitt til að hafa áhrif á líkamlega og andlega líðan. Meðal aðferðanna eru vöðvaslökun, dáleiðsla, sjónsköpun og öndunaræfingar. Lögð er áhersla á að KENNA slökunina þannig að fólk geti bætt líðan sína sjálft. Um allar þessar aðferðir má lesa nánar hér.

Frekari upplýsingar eru veittar á deild 11-B á LSH við Hringbraut og má bóka tíma hjá hjúkrunarfræðingum og riturum deildarinnar.

Símanúmerin eru 543 9950, 543 6100 og 543 6131.

brjostakrabbi

NÆRINGARRÁÐGJÖF

Matur og næring er liður í umönnun og meðferð og næringarráðgjöf hluti þjónustu LSH. Næringarráðgjafi gefur ráð um almennt fæði og sérfæði á sjúkrahúsinu og veitir sjúklingum og aðstandendum fræðslu og ráðgjöf samkvæmt beiðnum. Ræddu við krabbameinslækni þinn, hafir þú áhuga á að nýta þér þjónustuna.

Um mataræði og næringu má lesa mjög mikið á brjostakrabbamein.is.

brjostakrabbi

SÁLGÆSLA PRESTA OG DJÁKNA

Sálgæsla felst í að gæta að sálarheill fólks, sinna andlegum og trúarlegum þörfum þess og styðja það í raunum.

Hafa má samband við prest með því að tala við hjúkrunarfræðing eða ritara deildarinnar milli klukkan átta og fjögur. Utan þess tíma er hægt að hafa samband í skiptiborði LSH 543 1000 sem veitir upplýsingar um vaktsíma. Prestur eða djákni er á vakt allan sólarhringinn, allt árið um kring.

Allir skjólstæðingar og starfsmenn LSH hafa aðgang að presti/djákna og fyllsta trúnaðar er gætt.

brjostakrabbi

SJÚKRAHÓTEL

Á Rauðarárstíg 18 í Reykjavík er rekið sjúkrahótel á vegum LSH í samstarfi við Fosshótel. Sjúkrahótelið er ætlað fólki utan af landi sem leitar sér meðferðar í Reykjavík, þeim sem útskrifast af sjúkrahúsum eða bíða eftir sjúkrahúsdvöl og geta ekki verið heima, svo og þeim sem þurfa á hvíldarvistun um skamman tíma að halda. Aðstandendur geta einnig gist á sjúkrahótelinu, þar starfa hjúkrunarfæðingar og unnt að fá þangað heimaþjónustu hjúkrunarfræðinga, gerist þess þörf.

Fyrir dvöl á sjúkrahóteli þarf beiðni frá lækni.

brjostakrabbi

 

AÐ TAKAST Á VIÐ LÍFIÐ EFTIR GREININGU KRABBAMEINS

Námskeið LSH með þessu heiti eru sem stendur ekki í boði, en benda má á endurhæfingar- og stuðningmiðstöðina Ljósið þar sem m.a. er boðið upp á ýmis námskeið fyrir þá sem greinast með blóðsjúkdóma og/eða krabbamein og aðstandendur þeirra. Boðið er upp á sérstök námskeið fyrir börn. Á heimasíðu Ljóssins má sjá allt sem þar er í boði og unnt að skrá sig þar og fá sendar upplýsingar um það sem er á döfinni hverju sinni. Stuðningur og ráðgjöf er einnig veitt í Ráðgjafarþjónustunni sem starfrækt er í húsi Krabbameinsfélags Íslands í Skógarhlíð.

 

brjostakrabbi

GOTT ÚTLIT... BETRI LÍÐAN

Á námskeiðunum er farið í grundvallaratriði í umhirðu húðarinnar og leiðbeint um förðun. Þessi námskeið eru nú haldin hjá Ráðgjafarþjónustu K.Í. Best er að skrá sig á póstlista Ráðgjafarþjónustunnar t.d. með því að senda tölvupóst til una@krabb.is.

Hjá Ljósinu er einnig boðið reglulega upp á námskeið í slæðuhnýtingum og snyrtingu. Best er að skrá sig á póstlista Ljóssins með því að senda tölvupóst á ljosid@ljosid.org eða hringja í síma 561 3770.

Þegar ekki er boðið upp á námskeið geta þær sem það vilja farið inn á vefinn Look Good... Feel Better). Þar má finna mörg heilræði.  

 

brjostakrabbi

"ÚT Í LÍFIÐ"

Námskeið fyrir fólk sem er að ljúka eða hefur nýlokið krabbameinsmeðferð

Sem stendur er ekki boðið upp á námskeið með þessu heiti á LSH en benda má á endurhæfingar- og stuðningmiðstöðina Ljósið þar sem m.a. er boðið upp á ýmis námskeið fyrir þá sem greinast með blóðsjúkdóma og/eða krabbamein og aðstandendur þeirra. Boðið er upp á sérstök námskeið fyrir börn. Á heimasíðu Ljóssins má sjá allt sem þar er í boði og unnt að skrá sig þar og fá sendar upplýsingar um það sem er á döfinni hverju sinni.  Stuðningur og ráðgjöf er einnig veitt í Ráðgjafarþjónustunni sem starfrækt er í húsi Krabbameinsfélags Íslands í Skógarhlíð.

brjostakrabbi

 

Gönguhópur fyrir lengra komna

Uppörvandi er að hugsa til þess að hópur ungra kvenna hefur stofnað með sér styrktarfélagið Göngum saman og tóku þær í fyrsta skipti þátt í göngunni Avon Walk for Breast Cancer í New York dagana haustið 2007 til styrktar rannsóknum og meðferð á brjóstakrabbameini. Forsprakki þeirra greindist með brjóstakrabbamein og hefur glímt við það. Félagið hefur þegar safnað fé og veitt sína fyrstu styrki til rannsókna hérlendis til viðbótar við það sem safnaðist í tengslum við gönguna í New York. 

Hópurinn gengur reglulega á mánudagskvöldum klukkan átta, sjá nánar á nýrri heimasíðu félagsins sem opnuð var 19. júní, á degi kvenna.

 

 

Síðast uppfært í október 2011

 

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Text Size Controls