Kraftur
Kraftur
Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess og meginmarkmiðið að stuðla að velferð þess og aðstandendanna, koma nauðsynlegum upplýsingum á framfæri og vinna markvisst að málefnum sem varða andlegar og félagslegar þarfir þess.
Samtökin gáfu út bæklinginn Lífs-Kraftur (Þegar lífið tekur óvænta stefnu) árið 2003. Bæklingurinn er góður leiðarvísir gegnum hefðbundið greiningar- og meðferðarferli þeirra sem greinast með krabbamein. Í bæklingnum er einnig gerð grein fyrir nokkrum óhefðbundnum leiðum í baráttu við sjúkdóminn
Kraftur stendur fyrir fyrirlestrum, skemmtikvöldum, heilsudögum o.fl. Einnig standa samtökin að samtalshópum, bæði fyrir núverandi og fyrrverandi sjúklinga og aðstandendur.
Stuðningsnet Krafts veitir ungu, krabbameinsgreindu fólki og aðstandendum þess stuðning og ráðgjöf með viðtölum í síma eða í persónulegum viðtölum. Meðlimir Stuðningsnetsins eru Kraftsfélagar sem lokið hafa námskeiði hjá sálfræðingi og geta deilt reynslu sinni öðrum til hjálpar. Stuðningssíminn er 866 9618/866 9600.
Kraftur stendur að uppsetningu á hljóðkerfi og upptökubúnaði í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. Unnt verður að taka upp fundi, fyrirlestra og aðra viðburði og nálgast þá á netinu og gera þannig fleirum kleift að nýta sér það sem Ráðgjafarþjónustan hefur upp á að bjóða.
Á heimasíðu Krafts má finna þessi orð:
"Vonandi tekst okkur að kenna fólki að meta það sem það hefur og vera sátt við sjálft sig eins og það er - að rækta fjölskyldu sína, maka og vini. Lífsgæðakapphlaupið og allt áreitið og streitan sem við lifum við er ekki af hinu góða. Finnum tíma, gefum okkur tíma til að slaka á og láta okkur líða vel! "
Síðast uppfært í júní 2009
