Ljóð liðinna daga
Fuglar himins um vetur
Það er hægt og brýnt
að rjúfa þessa þögn
og ýfa
þetta hvíta kuldalín -
Þú mylur brauð
í skál, dýfir lófa
í mylsnuna
og dreifir á hjarnið -
Allt í einu hrjóta smáfuglar ofan
eins og guð
væri að strá fiðruðu korni
úr hnefa sínum.
Fuglarnir fljúga upp
á ný, hver með mola í goggi
og leggja í lófa guðs,
guðs -
Árni Ibsen

