Innlendir tenglar

Innlendir tenglar

Eftirmeðferð - sjúkraþjálfun

Sogæðabjúgur getur komið upp hvenær sem er, jafnvel mörgum árum eftir skurðmeðferð. Ég þori óhikað að mæla með þessum tveimur, Aðalheiði sem starfaði í mörg ár á LSH að endurhæfingu brjóstakvenna og er nú í ársleyfi frá spítalanum, og Önnu sem lærði og starfaði í mörg ár í Þýskalandi, fyrst og fremst með krabbameinssjúklingum. Uppáskrift frá lækni dugar til að fá hluta kostnaðar greiddan af TR

Aðalheiður K. Þórarinsdóttir; allakth@gmail.com hefur aðstöðu sína hjá sjúkraþjálfuninni Heil og sæl, Hraunbæ 102, s: 5674555; 8678656.

Anna Úrsúla Gunnarsdóttir; annag@sjukratjalfun.is er löggiltur sjúkraþjálfari og hefur aðsetur í Orkuhúsinu, Suðurlandsbraut 34, s: 5200 120; 842 7150.

Heilsunudd

Félag Íslenskra Heilsunuddara (F.Í.H.N.) var stofnað þann 23. júní árið 1974 (félagið hét upphaflega Félag Íslenskra Nuddara - F.Í.N. - en skipti um nafn á ársfundi 2004). Stofnfélagar voru 23 talsins en í dag eru félagsmenn tæplega 200. Upphafsmaður að stofnun félagsins var Ólafur Þór Jónsson, sem jafnframt var fyrsti formaður félagsins og hefur hann unnið ötullega að framgöngu nudds hérlendis. Meira um nudd.

Heilbrigði og hamingja

Benedikta Jónsdóttir hefur haldið námskeið reglulega um heilbrigði og hamingju, yfirleitt í húsakynnum Maður lifandi. Hún er mikil bókstafstrúarmanneskja í heilsufræðum og gefur hvergi eftir. Hún er dugleg að lesa bækur um óhefðbundnar lækningar og fleira áhugavert og segir frá þeim á síðunni sinni.

Hjálpartæki

Upplýsingar um hvar má finna laus brjóst og fleira finnurðu hér.

Upplýsingar um hvar má finna hárkollur og annað til að hylja höfuðið, finnurðu hér.

Til eru fleiri hjálpartæki sem TR, Tryggingastofnun ríkisins, hefur samþykkt handa fólki með krabbamein, telji læknir það geta stuðlað að betri líðan sjúklings. Meðal þessa eru Bara stuðningspúðar sem hjálpa til við að slaka á í herðum og handleggjum og koma í veg fyrir vöðvaspennu og verki sem henni fylgja. Hentar ekki síst þeim sem eru með eða hættir við sogæðabjúg. Meira hér.

Jurtir - lífræn íslensk framleiðsla

Jurtate, framleidd úr íslenskum jurtum og um margt fleira má lesa á natturan.is. Isplontur.is er vefur sem á að vera til en mér hefur ekki tekist að finna. Meira um eiginleika jurta má lesa í kaflanum um óhefðbundnar lækningar.

Krabbamein

Vefsíðunni krabbamein.is er haldið úti af Sigurði Böðvarssyni, lyf- og krabbameinslækni og er ætluð krabbameinssjúklingum og stuðningsmönnum þeirra.

Síðan inniheldur stutta kafla um öll algengustu krabbamein, faraldsfræði, einkenni og meðferð.

Einnig er hér að finna upplýsingar um algenga fylgikvilla krabbameina svo sem verki, þreytu og þyngdartap.

Sigurður minnir á að vefsíða getur aldrei komið í staðinn fyrir skoðun og samtal við lækni.

Síðan er ennþá aðgengileg þótt Sigurður hafi fært sig um set og starfi nú í Bandaríkjunum.

Lífrænar vörur

Lífrænar vörur eru seldar víða um land í heilsubúðum, heilsuhornum blómabúða, ýmsum stórmörkuðum og dagvöruverslunum. Þær má einnig nálgast í heildsölu og áskrift hjá þeim sem framleiða þær og flytja inn. Vörur með merki Túns eru vottaðar samkvæmt alþjóðlegum stöðlum og framleiðslan er undir reglubundnu eftirliti.

Upplýsingar um bændur og fyrirtæki sem framleiða vottaðar afurðir eða annast innflutning þeirra má fá hjá vottunarstofunni Túni.

Fleiri:

graenihlekkurinn.is

graennapril.is

Samtök lífrænna neytenda (á Facebook)

Garðyrkjustöðin Engi í Biskupstungum

Lýðheilsustöð - næring

Lýðheilsustöð vinnur fræðsluefni um hollustu og næringu fyrir börn, fullorðna og aldraða til notkunar í skólum, heilsugæslu og fyrir almenning í landinu og á í samstarfi við félagasamtök, stofnanir, fyrirtæki og skóla um heilsueflingu, næringu og hreyfingu.

Lýðheilsustöð - hreyfing

Starfsemi Lýðheilsustöðvar á sviði hreyfingar skiptist í fræðslu, ráðgjöf, heilsueflingarverkefni og rannsóknir.

Meginmarkmið starfsins er að stuðla að því að sem flestir landsmenn, á öllum aldri, stundi reglulega hreyfingu sér til ánægju og heilsubótar. Það er gert með því að horfa til þeirra fjölmörgu þátta sem hafa áhrif á hreyfingu. Áhersla er á náið samstarf við þá hagsmunaaðila sem viðfangsefnið varðar hverju sinni, s.s. sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, skóla og félagasamtök.

Reykingar

Bæklingurinn Hættu að reykja fyrir lífið heitir á frummálinu “Giving up for life” og er saminn af Jennifer Percival hjúkrunarfræðingi og ráðgjafa í tóbaksvörnum hjá Royal College of Nursing í Bretlandi en þýddur og staðfærður af KÍ með leyfi NHS (National Health Service). Annað fræðsluefni er upplýsingablaðið Konur og reykingar. Með því að smella á undirstrikuðu orðin kemstu beint inn á efnið.

REYKLEYSISNÁMSKEIÐ eru meðal annars haldin hjá:

Með því að smella á undirstrikuð orð kemstu beint inn á heimasíðurnar:

Krabbameinsfélagi Reykjavíkur

Heilsustofnun NLFÍ Hveragerði

Sogæðanudd

Sjá hér að ofan: Eftirmeðferð - sjúkraþjálfun.

Þunglyndi

Dagatalsbók Sölku 2010 er sérhönnuð fyrir konur og heitir Konur eiga orðið allan ársins hring. Opnuð hefur verið heimasíða þar sem konur geta komið hugleiðingum sínum á framfæri og hugsanlega verið með í næstu bók. Hluti af ágóðanum af sölu bókarinnar rennur til RANNSÓKNA Á ÞUNGLYNDI KVENNA.


Síðast uppfært í mars 2011

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 

Text Size Controls