Um vefsetrið

brjostakrabbamein.is

Um vefsetrið




brjostakrabbamein.is

LÍF með brjóstakrabbameini - LÍF án brjóstakrabbameins

er

ÓMETANLEGT HJÁLPARTÆKI

þeirra sem leita fræðslu um sjúkdóminn og stuðnings vegna greiningar, meðferðar og eftir krabbameinsmeðferð.

brjostakrabbi


brjostakrabbamein.is

er opin leið að áreiðanlegum upplýsingum lækna og sérfræðinga á nóttu sem degi, alla daga vikunnar.

Sem upplýsingaveita um brjóstakrabbamein á vefurinn sér enga hlið-stæðu á íslensku, með fimm stóra efnisflokka sem greinast í rúmlega 700 greinar eða síður.


Þar er að finna á einum stað

FLEST

sem snertir brjóstakrabbamein á einhvern hátt

og hvernig draga má úr líkum á því.


Hlutverk vefsetursins er m.a. að miðla fróðleik um sjúkdóminn, mismunandi meðferðir, gefa hollráð um heilsu og bata og veita styrk þeim sem á stuðningi þurfa að halda, hvort sem það eru krabbameinssjúklingar eða aðstandendur þeirra.

Stór hluti vefsetursins getur komið fólki að gagni með annars konar krabbamein, ýmislegt kann að hjálpa þeim sem stríða við langvinna sjúkdóma og vefurinn er mikill fróðleiksbrunnur nemum, fólki í heilbrigðisgeiranum og öðrum sem áhuga hafa á efninu.

Að stofni til er efni vefsetursins þýtt og staðfært með góðfúslegu leyfi Dr. Marisa Weiss, stofnanda og forseta breastcancer.org sem hlotið hefur fjölda viðurkenninga. Að baki stendur rúmelga 60 manna hópur lækna og sérfræðinga á öllum sviðum krabbameinslækninga, einkum brjóstakrabbameins. Læknisfræðilegt efni á brjostakrabbamein.is hefur mest allt verið lesið yfir af íslenskum læknum. Séríslenski hlutinn, Stuðningur, er að mestu frumsaminn.

Frumkvöðull, höfundur frumsamins efnis, þýðandi og ábyrgðarmaður er Þuríður Baxter.

brjostakrabbi

Við grunninn hefur verið bætt séríslenskum hluta, Stuðningur, með það fyrir augum að létta sjúklingum lífið meðan á sjúkdómi, meðferð eða bataferli stendur. Þessi hluti er enn í vinnslu og verður um sinn. Þar er nú að finna nytsama tengla og upplýsingar um samtök, þjónustu, endurhæfingu, óhefðbundnar lækningar og margt fleira. Þar er fjallað um óttann við krabbamein og hvernig má takast á við hann og fleira sem kann að styrkja fólk andlega. Þar birtast daglega nýtt ljóð og ný spekiorð sem geta kyrrt hugann, glatt og/eða miðlað styrk og huggun. Að degi loknum fara ljóð og máttarorð í sjóð sem unnt er að ganga í hvenær sem er.

brjostakrabbi

Hinn 5. maí 2008 var vefurinn brjostakrabbamein.is tengdur við netið og gerður aðgengilegur. Hann er EKKI FULLFRÁGENGINN og verður það kannski seint því sífellt bætist við nýtt efni og nýjar uppfærslur. Eftir er að íslenska óverulegan hluta af fyrstu útgáfu breastcancer.org og birtist það efni á ensku. Miklu efni var bætt við ameríska vefinn árið 2008 og útliti hans og uppröðun breytt. Það efni hefur að nokkru leyti ratað inn á brjostakrabbamein.is og er í vinnslu.

Hluti efnis er enn ólesinn af læknum. Við lesna hluta er yfirleitt getið nafns þess sem það gerði. Áform um að opna vefinn formlega og kynna hann haustið 2008 urðu að víkja af óviðráðanlegum ástæðum og óljóst hvort eða hvenær mun viðra til þess. Ekkert er því þó til fyrirstöðu að fólk geti nýtt sér vefinn eins og hann er nú. 

brjostakrabbi 

Brýnt er fyrir þeim sem vilja nýta sér upplýsingarnar að leita staðfestingar hjá íslenskum krabbameinslækni við fyrsta tækifæri þegar um er að ræða læknisfræðilegar spurningar.


 


Síðast uppfært í september 2009

 

Netfang: brjostakrabbamein@brjostakrabbamein.is

og: thurib@simnet.is

Aðsetur: Samtökin brjóstakrabbamein

c/o Þuríður Baxter,

Sogavegi 32

108 REYKJAVÍK

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

 


 

Text Size Controls